Rekstrarráðgjöf og stjórnendaráðgjöf byggð á reynslu og trausti
Fagleg mannauðsráðgjöf, rekstrarráðgjöf, verkefnastjórnun og breytingastjórnun á Íslandi. Persónuleg og vönduð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Meðal viðskiptavina

Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
Rekstrar- og stjórnunarráðgjafi — MBA
Katrín Dóra er rekstrar- og viðskiptafræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að vera með kennaramenntun frá Danmörku. Hún hefur fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum og hefur starfað sem framkvæmda-, fjármála-, mannauðs- og verkefnastjóri.
Hún hefur starfað fyrir einkageirann, opinbera geirann og félagasamtök — m.a. sem forstöðumaður hugverkaiðnaðarins og mannauðs hjá Samtökum iðnaðarins, fjármálastjóri hjá Fjarðabyggð, mannauðsstjóri hjá Norðlenska matborðinu og framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar.
Hún hefur jafnframt góða reynslu af stjórnarsetu.
Hún tekur að sér fjölbreytt verkefni s.s. tímabundna stjórnendastarfsemi, mannauðstengd verkefni, stjórnun tímabundinna verkefna og stefnumótun. Verkefnin tengjast oftar greiningum í tengslum við breytingarstjórnun og umbætur.
Lausnir sem skila árangri
K ráðgjöf & þjónusta býður upp á fjölbreytta stjórnenda og rekstrarráðgjöf, stjórnanda til leigu, mannauðsráðgjöf, verkefnastjórnun og breytingarstjórnun.
Fyrirtækið vinnur með fyrirtækjum og stofnunum að því að bæta árangur. Það bíður viðskiptavinum stuðning og verkfæri til að skilgreina tækifæri, hefja framkvæmd og innleiða jákvæðar breytingar í krefjandi starfsumhverfi á síbreytilegum markaði.
K ráðgjöf & þjónusta byggir á víðtækri þekkingu og stjórnunarreynslu eiganda þess, Katrínar Dóru Þorsteinsdóttur. Fyrirtækið hefur starfað frá árinu 2017.
Rekstrarráðgjöf og umbætur
Ráðgjafi K ráðgjafar & þjónustu veitir viðskiptavinum fjölþætta rekstrarráðgjöf. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar og styðjum þá til að taka betri og upplýstari ákvarðanir, bæta rekstur, hámarka arðsemi og ná markmiðum sínum. Við nýtum þekkingu okkar og reynslu til að aðstoða ykkur við að fanga þau tækifæri sem gefast og koma á jákvæðum breytingum.
Mannauðsmál og ráðgjöf
Ráðgjafi hjá K ráðgjöf & þjónustu vinna með viðskiptavinum að því að byggja upp sterkari einingar sem laða að sér faglegt og lausnarmiðað starfsfólk. Við komum að mótun eða endurnýjun stefna og verklags innan mannauðsmála og mótun með tillögur til að skapa enn jákvæðri vinnustaðarmenningu sem hvetur starfsfólk til dáða. Viðskiptavinir fá aðstoð við að tryggja að allur aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustaðnum sé í samræmi við lög. Þá bjóðum við aðstoð við ráðningar, erfið starfsmannasamtöl og aðstoð við mótun starfsþróunaráætlunar.
Breytingastjórnun
K ráðgjöf & þjónusta býður upp á ráðgjöf og aðkomu að breytingarstjórnun þegar breytingar eru fyrirhugaðar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Við slíkar aðstæður er að mörgu að huga. Fjölmarga þætti þarf að samtvinna og oft við erfiðar aðstæður. Starfsfólk er óöruggt um stöðu sína framtíð og stefnu við breytingar. Við slíkar aðstæður er gott að fá inn óháðan aðila sem getur metið stöðuna hlutlaust. Breytingar krefjast mikillar vinnu og þær þarf að skipuleggja ítarlega ef vel á að takast auk mikillar eftirfylgni við innleiðingu.
Verkefnastjórnun
Ráðgjafi K ráðgjafar & þjónustu nýtir aðferðafræði í verkefnastjórnun sem felur í sér undirbúning, áætlanagerð, framkvæmd og verkefnaskil. Með því að skilgreina verkefnin í upphafi og kalla til þá einstaklinga sem hafa hæfni og þekkingu til að leysa verkefnin má tryggja væntan árangur. Þannig getum við aðstoðað viðskiptavini okkar að ná fram markmiðum verkefnisins innan tíma- og kostnaðaráætlana hvort sem um er að ræða smærri eða stærri verkefni.
Hvernig við vinnum
Greining
Við greinum stöðuna, skilgreinum tækifæri og leggjum mat á þarfir fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
Tillögur
Á grundvelli greiningarinnar leggjum við fram skýrar og raunhæfar tillögur að lausnum og aðgerðum.
Innleiðing
Við vinnum með ykkur að framkvæmd og innleiðingu breytinga, með áherslu á skilvirkni og gæði.
Eftirfylgni
Við tryggjum árangur með reglubundinni eftirfylgni og aðlögun að breyttum aðstæðum.

“Við styðjum viðskiptavini okkar og veitum þeim verkfæri til að skilgreina tækifæri, hefja framkvæmd og innleiða jákvæðar breytingar í krefjandi starfsumhverfi á síbreytilegum markaði.”Hafðu samband→
Hvað segja viðskiptavinir
“Katrín Dóra hefur komið inn í fjölbreytt verkefni hjá Mosfellsbæ og leyst þau frábærlega vel af hendi. Hún hefur leyst af stjórnendur í ólíkum verkefnum á sviði mannauðs- og umhverfismála og er mjög fljót að setja sig inn í ólíka málaflokka. Hún vinnur mjög skipulega að úrlausn mála og skilar af sér mjög skýrum og vönduðum gögnum. Þá hefur hún mikla reynslu á sviði fjármála og er mjög töluglögg. Ég mæli hiklaust með Katrínu Dóru í hverskyns verkefni á vegum fyrirtækja, félagasamtaka og opinberra aðila.
“Katrín Dóra býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu á sviði mannauðsmála og hefur reynst sveitarfélaginu afar dýrmætur samstarfsaðili. Ráðgjöf hennar hefur styrkt innra starf sveitarfélagsins, stuðlað að skýrari verkferlum og eflt faglegt umhverfi starfsfólks. Ég get heilshugar mælt með þjónustu Katrínar Dóru fyrir þau sem leita að öflugum og áreiðanlegum mannauðsráðgjafa.
“SSH hafa um árabil notið þjónustu K ráðgjafar við ráðningar og önnur starfsmannamál. Þjónustan hefur verið framúrskarandi þar sem hún er í senn byggð á faglegri nálgun og reynslu í rekstri og ráðningum á opinberum vettvangi.
Við hlökkum til að heyra frá þér
Sendu okkur fyrirspurn og við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er. Einnig er velkomið að hringja eða senda tölvupóst beint.